Copy
Fjármálalæsi, lærdómsborgir og viðtöl við sérfræðinga
Skoða þennan póst í vafra

Vertu með í EPALE samfélaginu ásamt 11 þúsund sérfræðingum í fullorðinsfræðslu. Taktu þátt og gefðu álit, komdu með athugasemdir og eigin hugmyndir!


Fjármálalæsi, lærdómsborgir og viðtöl við sérfræðinga

Kæru EPALE félagar

Dagana 23.-27. maí beindi EPALE sérstaklega sjónum sínum að fjármálalæsi. EPALE teymin í heimalöndunum birtu margar nytsamlegar greinar og efni víðsvegar að frá Evrópu.

Blogg greinar

  • Sjáið hvernig hollensk stjórnvöld aðstoða landsmenn við að fylla út skattaframtölin sín á netinu (enska).
  • Kíkið á þessa grein eftir Moniku Tröster og Beate Bowien-Jansen frá þýsku fullorðinsfræðslustofnuninni. Þar útskýra þær að fjármálalæsi er svo mikið meira en bara reikningur (þýska).
  • Kíkið á góð ráð og uppástungur sem sérfræðingurinn Jill Brown gefur við að kenna fullorðnum tugabrot (enska).
  • Ekki missa af þessu viðtali við sálfræðinginn  Jean Beaujouan – sem vinnur við að kenna fjármálalæsi (franska).

Fréttir frá Evrópu

Fullorðinsfræðsla og símenntun voru ofarlega á dagskrá í Evrópu í maí:

  • Í Slóveníu var Viku símenntunar 2016 formlega ýtt úr vör í samvinnu við slóvensku fullorðinsfræðslustofnunina (slóvenska).
  • Þýska mennta- og rannsóknaráðuneytið lét af hendi 15 milljón evrur til að nota í nýsköpunarverkefni fyrir framhaldsmenntunargeirann (þýska).
  • Málstofa um „Lærdómsborgir“  var haldin í Bologna á Ítalíu þann 16. maí. Þar ræddu þátttakendur um áskoranir og framtíð lærdómsborga (ítalska).
  • Ekki gleyma að taka þátt í EPALE könnuninni ef þú hefur ekki gert það nú þegar. Það hjálpar okkur að byggja upp betra EPALE fyrir þig.

Vissir þú að: Hægt er að nálgast EPALE á öllum 24 tungumálum Evrópusambandslandanna og efnið á hverju máli er einstakt, sett saman af landsteymum okkar um gervalla Evrópu. Það er meira að segja hægt að nálgast EPALE á 67 tungumálum til viðbótar þökk sé Google þýðingarkerfinu sem nýlega var sett upp.  

Skráið ykkur núna!

Ekki gleyma að skrá ykkur á EPALE til að geta deilt skoðunum ykkar um það sem skrifað er þar. Skráið ykkur núna og verið með í samfélagi 11.000 sérfræðinga um fullorðinsfræðslu.

Vinsamlega látið koma fram á EPALE prófílnum ykkar ef ykkur langar til að fá frekari fréttir og upplýsingar frá EPALE landsteyminu í heimalandi ykkar. Það er einfalt, bara skrá ykkur inn, smella á nafnið ykkar efst í hægra horninu, smellið á „Edit“ takkann og hakið við „NSS contact permission“ kassann.

Facebook
Facebook
Vefsíða
Vefsíða
Email
Email

© 2016 Rannís, Allur réttur áskilinn.