Heilir og sælir ágætu félagar!
Gleðilegt ár og þakka ykkur samstarfið á liðnu ári. Framundan er annasamt vor með kjarasamingaviðræðum og vinnu við vinnumat kennara ef það verður samþykkt. Kennarar kjósa um vinnumat seinni hluta febrúar og mun niðurstaða liggja fyrir 1. mars næstkomandi.
Skólastjórafélagið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa þegar hafið undirbúning að því að skipuleggja námskeið fyrir skólastjóra og aðstoðarskólastjóra eða deildarstjóra/staðgengla um vinnumatið og innleiðingu þess. Haldin verða átta tveggja daga námskeið um allt land á tímabilinu frá miðjum mars, í apríl og byrjun maí ef vinnumatið verður samþykkt. Námskeiðin verða auglýst í febrúar með fyrirvara um að þau falli niður fari svo að vinnumatið verði ekki samþykkt.
Það er afar mikilvægt að skólastjórar um allt land fái fræðslu um vinnumatið og tækifæri til að vinna saman að markvissri og faglegri innleiðingu vinnumatsins ef vel á að takast til. Það er alveg ljóst að vinnumatið mun verða í þróun næstu tvö árin að minnsta kosti.
Þá er ekki hægt að gera ráð fyrir það verði tími hjá skólastjórum á vorönn til að undirbúa næsta vetur miðað við fulla framkvæmd vinnumats. Það er samt mikilvægt að taka ákveðin skref sem unnið verður að og síðan áfram með í hverjum skóla.
Með kveðju
Svanhildur
|