Stafrænt kennsluefni og miðlun
Sumarnámskeið 3f, félags um upplýsingatækni og menntun, í samstarfi við SEF
Haldið í Verzlunarskóla Íslands 9.–10. júní nk. kl. 09:00–16:00
Lýsing
Á námskeiðinu verður kynntur fjölbreyttur hugbúnaður fyrir upptökur á stafrænu kennsluefni, miðlun á því ásamt vistun á neti.
Fyrri dagur námskeiðsins verður í formi fyrirlestra og leiðbeininga um notkun fjölbreytts hugbúnaðar og lausna í gerð stafræns efnis, samsetningu og vistun á neti/vef. Seinni daginn vinna þátttakendur raunhæf verkefni undir leiðsögn kennara. Einnig kynna ýmsir kennarar notkun á eigin stafrænu efni og efla þannig þátttakendur í fjölbreyttum og skapandi aðferðum í kennslu og verkefnaskilum. Eftirfylgni með þátttakendum verður í Moodle fram á haustið.
Fyrir hverja og hvar?
Námskeiðið er ætlað framhaldsskólakennurum, þeim að kostnaðarlausu, og kennurum á öðrum skólastigum ef pláss leyfir.
Námskeiðið verður haldið í Verzlunarskóla Íslands 9.–10. júní nk. kl. 09:00–16:00.
Skráning á námskeiðið á vefsíðu 3f eða hér.
Kennari
S. Fjalar Jónsson, kennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti
Umsjón með námskeiðinu
Stjórn 3f: www.3f.is
|