Copy
Íslenska Leikjasamfélagið www.eSports.is
Kemur pósturinn ekki réttur út? Skoðaðu hann í vafranum

Lan-, og online mót fréttir.
www.eSports.is

Tuddinn kominn aftur af stað | Ekkert kjaftæði í þessari deild, reglur verða reglur

 Eftir höfund Chef-Jack on Sep 10, 2017 08:25 am

Counter-Strike: Global Offensive

Íslenskt mót framundan í leiknum Counter-Strike: Global Offensive og að þessu sinni online. Það eru stjórnendur Tuddans sem hafa veg og vanda af skipulaginu.

Reglurnar hafa verið hertar en þar segja stjórnendur í skráningunni að ef þið eruð ekki tilbú(in/nir) að taka þátt í þessum reglum eruð þið vinsamlegast beðin um að sleppa því að taka þátt. Ekkert kjaftæði í þessari deild. Reglur verða reglur.

Nokkrir hugrakkir spilarar hafa nú þegar skráð sig.

 


Lestu greinina á esports.is »

share on Twitter Like Tuddinn kominn aftur af stað | Ekkert kjaftæði í þessari deild, reglur verða reglur on Facebook

Hvað hefur gerst að undanförnu?

 Eftir höfund Chef-Jack on Sep 10, 2017 08:01 am
HRingurinn og Tuddinn

Eins og sést á myndinni, þá var þátttaka gríðalega góð á lanmóti HRingsins og Tuddans

Í ágúst var haldið eitt stærsta lanmót á Íslandi en þar höfðu HRingurinn og Tuddinn sameinast og buðu upp á lanmót 11. til 13. ágúst s.l.

Keppt var í CS:GO, Hearthstone, League of Legends, Overwatch og StarCraft II. Þátttaka var mjög góð og mættu tæplega 300 keppendur til leiks og keppt var um verðlaun að verðmæti rúmar 700.000 þúsund. Myndir frá mótinu er hægt að skoða með því að smella hér.

Frá því að fréttaritari eSports.is hóf að skrifa fréttir um eSports mótin hjá íslensku leikjasamfélaginu sem eru orðin ansi mörg ár síðan, þá er mjög áberandi að stjórnendur mótanna eru duglegir að senda út tilkynningarnar um að online og lanmót er framundan. Þegar kemur að því tilkynna úrslit eftir mótin er minna af því og er þetta eitthvað sem að stjórnendur þurfa að huga að og laga.
Engu að síður, þá eiga stjórnendur mótanna hrós skilið fyrir óeigingjarnt starf í sjálfboðavinnu við undirbúning, framkvæmd mótanna.

King of Nordic hefur verið á sínum stað og þar er fylgt vel eftir, góðar tilkynningar fyrir öll mótin og úrslit kynnt eftir hvert mót, vel gert. Lítið hefur farið fyrir íslenskum liðum í því móti að undanförnu, lítill áhugi á mótinu, tímaleysi? … er ekki gott að vita, en engu að síður skemmtilegt mót sem vert er að fylgjast með.

Gzero hélt lanmót í ágúst í leiknum League of Legends og þar sigraði Helga francis aka ll nero. Mótin eru haldin mánaðarlega og úrslitin úr mótinu þar á undan var eftirfarandi: 1. sæti nimoe – 2. sæti wwaadduupp – 3. sæti Sölvikaaber.

Ég er hér enn ef þú skyldir hafa spáð í því og er ekkert að fara.

Mynd: facebook / Tuddinn

 


Lestu greinina á esports.is »

share on Twitter Like Hvað hefur gerst að undanförnu? on Facebook



 

Eldri Lan-, online mót fréttir:

Seinasti þátturinn í King of Nordic!
Seven spila fyrir hönd Íslands í King of Nordic.
Tuddinn umferð 3 úrvalsdeild – Turbo talar!
Tuddinn umferð 2 úrvalsdeild – Turbo talar!
Tuddinn umferð 1 úrvalsdeild – Turbo talar!
eSports.is á samfélagsmiðlum:
Það er líka hægt að fylgja okkur á Steam með því að smella hér.
Höfundarréttur © 2017 eSports.is, Allur Réttur Áskilinn.


Viltu breyta hvernig þú færð tölvupóst frá okkur?
Þú getur uppfært þína skráningu hér eða segja upp áskriftinni hér

Email Marketing Powered by Mailchimp