Vertu með í EPALE samfélaginu ásamt 11 þúsund sérfræðingum í fullorðinsfræðslu. Taktu þátt og gefðu álit, komdu með athugasemdir og eigin hugmyndir!
Mikilvægi óformlegrar og formlausrar menntunar
Kæru EPALE félagar
Dagana 15.-19. ágúst lagði EPALE sérstaka áherslu á óformlega og formlausa menntun.
Enn sem komið er hefur ekki verið lögð mikil áhersla á rannsóknir á þessum menntunaraðferðum, sem samt sem áður hafa gagnast mjög vel þeim sem ekki tekst að ná til með hefðbundnum, formlegum menntaleiðum.
EPALE teymi í öllum Evrópulöndum hafa tekið höndum saman við að útvega sérfræðingum í fullorðinsfræðslu upplýsingar um hagnýt úrræði, áhugaverðar greinar og góð ráð um það sem er að gerast í greininni. Lista með öllu efni sem tengist óformlegri og formlausri menntun er að finna á undirslóðinni : Valuing non-formal and informal learning.
Blogg greinar
- Validation of non-formal and informal learning – a holistic approach by Scotland (þýska, enska, spænska, franska, ítalska, pólska).
Staðfesting á óformlegri og formlausri menntun er flókið ferli. Andrew McCoshan, sérfræðingur EPALE í samræmingu á gæðum menntunar, skrifaði grein um aðferðir sem Skotar hafa notað með góðum árangri og nýst geta fagfólki í öðrum löndum.
- Case study on Feeling Younger by Getting Older (þýska, enska, spænska, franska, ítalska, pólska).
Við höfðum samband við Serena Barilaro sem vann verkefni undir heitinu „Þér finnst þú yngri með hverju ári sem þú eldist .“ Serena sagði okkur hjá EPALE hvernig það gagnast bæði þeim eldri og yngri að deila þekkingu og færni.
- Quality in guidance: Challenges for Europe (enska, finnska, sænska)
Við tókum viðtal við Mika Launikari hjá Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar í Finnlandi um nauðsyn þess að Evrópa innleiði heildræna nálgun varðandi gæði í menntun, atvinnumál og símenntun.
|