Copy

 
Skólar á leik-,grunn- og framhaldsskólastigi
SÆKJA UM ÞÁTTTÖKU Á TENGSLARÁÐSTEFNU

Tengslaráðstefna fyrir Erasmus+ skólaverkefni og samstarf skóla í Dublin á Írlandi 14. - 16. nóv. nk.


Landskrifstofa Erasmus+ mennta- og æskulýðsáætlunar ESB á Íslandi auglýsir eftir þátttakendum á tengslaráðstefnu fyrir skóla á grunn- og framhaldsskólastigi sem ber heitið „School Education: First steps to Erasmus+ and Partner Finding“. Ráðstefnan verður haldin í Dublin á Írlandi 14. - 16. nóvember. Áætlaður fjöldi þátttakenda er 40 manns, þar af eiga Íslendingar tvö sæti.

Tilgangur tengslaráðstefna er að efla tengsl fagfólks frá mismunandi Evrópulöndum. Mikil áhersla er lögð á að finna samstarfsaðila með það í huga að senda inn umsókn í Erasmus+ áætlunina á næsta umsóknarfresti árið 2017.

Markmið ráðstefnunnar er að þátt­takendur kynnist vel tækifærum Erasmus+ og þrói hugmyndir að nýjum Erasmus+  náms- og þjálfunar­verkefnum sem og samstarfs­verkefnum.

Markhópar ráðstefnunnar eru skólar á grunn- og framhaldsskólastigi sem stefna að þátttöku í evrópsku samstarfi. 

Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um nafn, stofnun og stöðu innan skóla. Einnig þurfa að koma fram upplýsingar um reynslu umsækjanda og verkefnishugmynd. Við úthlutun styrkja er meginreglan að ekki fari nema einn frá hverjum skóla, fyrirtæki eða stofnun.

Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi veitir styrk fyrir ferðakostnaði. Þátttökugjald, gisting og uppihald meðan á ráðstefnunni stendur er greitt beint af Landskrifstofu.

Umsóknarfrestur er til og með 29. september nk.

Gildi náms erlendis

Viðtal við Illuga Gunnarsson menntamálaráðherra þar sem hann fjallar m.a. um gildi evrópsks samstarfs í menntamálum. Smelltu á myndina til að horfa á viðtalið.

Tölvupóstur
Tölvupóstur
Vefsíðan
Vefsíðan
Facebook
Facebook
Myndbönd
Myndbönd
Öll réttindi áskilin © 2016 Rannís


afskrá mig    uppfæra skráningu