Copy

 
Guðný Katrín Einarsdóttir segir frá reynslu sinni af starfsnámi í Helsinki. Smelltu á myndina til að horfa á myndbandið.
Tölvupóstur
Tölvupóstur
Vefsíðan
Vefsíðan
Facebook
Facebook
Myndbönd
Myndbönd

Námskeið fyrir náms- og starfsráðgjafa og alþjóðafulltrúa framhalds- og háskóla

Námskeiðið verður haldið þann 18. október kl. 12.30-15.30, í sal Samiðnar, Borgartúni 30, 6. hæð. Boðið verður upp á léttan hádegisverð og kaffi.
 

Samvinna og verkaskipting við ráðgjöf nema sem hyggja á dvöl erlendis

Nemendur og starfsfólk framhalds- og háskóla sem vilja taka hluta af námi sínu erlendis eða sinna kennslu eða þjálfun við sambærilegar stofnanir eða fyrirtæki í öðrum löndum, vita oft ekki hvert þeir eiga að snúa sér í leit að upplýsingum um tækifæri til dvalar erlendis, og hvar þeir geta fengið ráðgjöf vegna undirbúnings dvalar. Ástæður þessa geta verið margvíslegar. Er aðgengi að upplýsingum innan stofnunar takmarkað? Er verkaskipting milli starfsmanna innan stofnunar varðandi upplýsingagjöf annars vegar og ráðgjöf hins vegar óljós? Tölfræði sýnir sömuleiðis að einstaka nemendahópar, s.s. þeir sem eiga við fötlun að stríða, taka síður þátt í alþjóðlegu samstarfi en aðrir. Hvaða skýringar kunna að vera á því?

Markmið þessa námskeiðs er annars vegar að leita svara við ofangreindum spurningum og fleirum, og hins vegar að stuðla að samtali þeirra sem á einn eða annan hátt veita upplýsingar og sinna ráðgjöf á þessu sviði um nálgun innan stofnunar, samstarf náms- og starfsráðgjafa og alþjóðafulltrúa.  

Flutt verða erindi en einnig verður unnið í hópum út frá mismunandi áherslum í upplýsingagjöf og ráðgjöf. Í lok dags er gert ráð fyrir fyrsta uppkasti að grunni að verklagsreglum sem gætu í framtíðinni verið sameiginlegar fyrir náms- og starfsráðgjafa og alþjóðafulltrúa í öllum framhalds- og háskólum.

Námskeiðið er samstarfsverkefni Evrópuverkefnanna Euroguidance, Europass og The Bologna Reform in Iceland (BORE).

     

Vinsamlegast skráið þátttöku
Öll réttindi áskilin © 2016 Rannís


afskrá mig    uppfæra skráningu