Fimleikaþing var fyrirhugað 6. júní 2020. Skv. 6. gr. laga sambandsins skal boða til þingsins með minnst átta vikna fyrirvara sem var 11. apríl, þegar að Covid-19 var í hámarki í landinu og óvíst hvernig framvinda mála yrði. Nú hafa yfirvöld talað um að í næstu afléttingu á takmörkunum muni samkomubannið fara í 100 manns í sama rými. Þar sem að fleiri en 100 er boðið á Fimleikaþing og ÍSÍ hefur gefið út að ekki megi stytta fyrirvara á boðun þingsins, hefur stjórn FSÍ ákveðið að þinga þegar að starfið hefst á ný í haust. Við munum senda dagsetningu og boðun út á næstu dögum.
|