Þann 17.maí næstkomandi fagna frændur okkar Norðmenn þjóðhátíðardegi sínum. Það var þann dag, árið 1814, sem Noregur varð fullvalda ríki í konungssambandi við Svíþjóð og stjórnarskráin þeirra, frá Eiðsvelli, gekk í gildi. Norðmenn fagna deginum með pompi og prakt, skrúðgöngur eru haldnar víðsvegar um landið þar sem áherslan er á að skemmta börnum og fjölskyldufólki.
Stærsta skrúðgangan hefur árlega verið haldin í höfuðborginni, Osló, þar sem konungsfjölskyldan hefur veifað til gesta. Í ár hefur öllum hátíðarhöldum verið slegið á frest af ótta við útbreiðslu Covid-19 veirunnar.
Hér á landi verður deginum fagnað með viðburðum á Facebook, á vegum norska sendiráðsins. Við óskum Norðmönnum innilega til hamingju með daginn.
|