Réttindanefnd LL hefur unnið að því að uppfæra samninga og yfirfara verklag við skiptingu ellilífeyrisréttinda. Nýtt verklag verður tekið upp 1. júní nk.
Helstu breytingar frá fyrra verklagi eru:
- Tvö ný samningseyðublöð í stað eins áður.
- Uppfærð eyðublöð fyrir heilbrigðisvottorð og staðfestingu trúnaðarlæknis.
- Nýtt og uppfært verklag við skiptingu ellilífeyrisréttinda.
- Þrjú samræmd fylgiskjöl.
Framkvæmdastjórar og skrifstofustjórar hafa þegar fengið eyðublöðin fyrir samningana, heilbrigðisvottorðið og staðfestingu trúnaðarlæknis send en þau eru einnig aðgengileg á Lífeyrismál.is undir Spurt & svarað/Skipting ellilífeyrisréttinda.
Nýir verkferlar, ásamt fylgiskjölunum þremur, voru sendir framkvæmdastjórum og skrifstofustjórum.
Nýtt verklag tekur gildi 1. júní nk.
Starfsfólk LL svarar öllum spurningum sem kunna að vakna í tengslum við nýja verkferla og mælum við með að sendur verði tölvupóstur á ll@ll.is.