Stofnanir sem vinna að þessum málaflokkum geta sótt um: Skólar á öllum stigum og sviðum, sveitarfélög, félagasamtök, óformlegir hópar ungs fólks, fyrirtæki og stofnanir í starfsmenntun og fullorðinsfræðslu.
Gert er ráð fyrir að almenn kynning og spurningar taki um klukkustund. Starfsfólk Rannís verður síðan áfram á svæðinu og veitir ráðgjöf.
Kynningin miðast við þá sem þekkja lítið til þessara áætlana og umsóknarferlisins.
- Nám og þjálfun í Erasmus+ (ferða og uppihaldsstyrkir)
- Næsti umsóknafrestur er 5. febrúar 2020.
- Samstarfsverkefni í Erasmus+
- Næsti umsóknafrestur fyrir alla flokka er 24. mars 2020 (í æskulýðshluta er líka umsóknarfrestur 5. febrúar 2020).
Nordplus áætlunin:
- Bekkjarheimsóknir, kennaraskipti, norræn tungumálaverkefni og samstarfsverkefni á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndum.
- Næsti umsóknarfrestur er 3. febrúar 2020.
|