Rafmyntaráð Íslands ásamt Háskólanum í Reykjavík heldur tveggja daga, sex klukkustunda námskeið, þann 12. og 13. febrúar næstkomandi. Á námskeiðinu verður farið yfir þau tækifæri og áskoranir sem bálkakeðjur og rafmyntir bera með sér inn í fjórðu iðnbyltinguna. Sérstaklega verður horft til upprunarakningar fyrir virðiskeðjur eins og til að mynda í sjávarútvegi og í vöruflutningum.
Námskeiðið er tilvalið fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem vilja fræðast meira um notagildi tækninnar til að sjá tækifæri og ógnir. Skráning stendur nú yfir á vefsíðu Opna Háskólans.
|
|