|
|
|
Rannís óskar eftir sérfræðingum til að meta umsóknir í menntahluta Erasmus+
Óskað er eftir einstaklingum sem hafa:
- Þekkingu á íslensku menntakerfi, sérstaklega á sviði starfsmenntunar, fullorðinsfræðslu og háskóla
- Reynslu af fjölþjóðlegu samstarfi og verkefnastjórnun, ásamt skilningi á stefnumiðum Evrópusambandsins um menntun
Leitað er að matsmönnum til að meta umsóknir í tveimur verkefnaflokkum; nám og þjálfun og samstarfsverkefni.
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði.
Starf matsmanna er verkefnatengt og tímabundið í tengslum við umsóknafresti Erasmus+ áætlunarinnar. Umsóknarfrestur er til 12. febrúar.
Áhugasamir eru beðnir um að senda inn umsókn og ferilskrá í tölvupósti eigi síðan en 12. febrúar á netfangið: erasmusplus@rannis.is
|
|
|
|
|
|
|
|
|