Fækkum smitleiðum
Handhreinsun og hreinlæti kringum augu, nef og munn ásamt öruggri meðhöndlun fæðu eru lykilatriði til að forðast smit og fækka smitleiðum í þeim tilgangi að draga úr líkum á alvarlegum veikindum.
Kórónasýklar Novel (2019-nCoV) haga sér í sumu eins og inflúensa, einkenni eru svipuð og smitleiðir áþekkar.
Einkenni líkjast helst inflúensusýkingu, hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir, þreyta o.s.frv. Sýklarnir geta einnig valdið alvarlegum veikindum í öndunarfærum og lungnabólgu, sem koma oft fram sem öndunarerfiðleikar á 4-8 degi veikinda. Notum sprittið og hóstum í olnbogabót!
Ef einstaklingur finnur fyrir veikindum er bent á að hringja í síma 1700 (fyrir erlend símanúmar +354 544-4113) til að fá nánari upplýsingar og hvernig eigi að nálgast heilbrigðiskerfið.
Þessir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma.
Nánar á vef embættis landlæknis
|