Copy
FRÉTTABRÉF GRÓTTU - JÚNÍ

FORSKRÁNING Í FIMLEIKADEILD GRÓTTU VETURINN 2021-2022 ER HAFIN

Forskráning í fimleikadeild Gróttu er hafin fyrir veturinn 2021-2022 og stendur til 30. júní á sportabler.com/shop/grotta 

Greitt er 10.000 kr skráningargjald með kreditkorti við skráningu. Skráningargjaldið er óafturkræft en dregst frá æfingagjöldum næsta vetrar. Komi upp sú staða að fimleikadeildin þurfi að neita umsækjendum um pláss er möguleiki á að óska eftir að fá skráningargjaldið endurgreitt.

Athugið að biðlistinn fellur nú úr gildi og allir sem vilja komast að næsta vetur þurfa að forskrá sig. Eftir að forskráningu lýkur verður hægt að skrá á biðlista.

SUMARNÁMSKEIÐ GRÓTTU OG SELTJARNARNESBÆJAR

Skráning á sumarnámskeið Gróttu og Seltjarnarnesbæjar er í fullum gangi.  Spennandi framboð af námskeiðum. Meðal annars: 
  • Leikjanámskeið 
  • Ævintýranámskeið 
  • Survivor-námskeið 
  • Smíðavöllur 
  • Knattspyrnuskóli
  • Fimleika- og leikjaskóli
  • Handboltaskóli
Nú er bara að skrá börnin inn en skráning og greiðsla fer fram í gegnum Sportabler á sportabler.com/shop/grotta

Upplýsingar um framboð er hægt að nálgast á vef Gróttu á grotta.is/sumar-2021 eða í síma 561-1133 á milli kl 13:00 og 16:00. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið gullijons@grotta.is

HEIMALEIKJAKORT KNATTSPYRNUDEILDAR

Baráttan heldur áfram í Lengjudeild karla og kvenna, bæði lið hafa farið vel á stað og eru bæði í 3. sæti með 7 stig eftir fjóra leiki. 

Meistaraflokkur karla tekur á móti Þrótti Reykjavík í kvöld, fimmtudaginn 3. júní kl. 19:15. Stelpurnar eiga heimaleik á sunnudag þegar topplið Afturelding mætir í heimsókn og hefst leikurinn kl. 14:00.
 
Sala heimaleikjakorta fer fram á vef Gróttu á grotta.is/knattspyrnudeild/heimaleikjakort

LJÓSMYNDIR 2020-21

Ljósmyndari Gróttu, Eyjólfur Garðarsson hefur tekið mikið magn af ljósmyndum bæði af leikjum meistaraflokka og yngri flokka handbolta og fótbolta í Gróttu.

Ljósmyndir vetrarins er að finna á:

  • Handbolti: https://grotta.is/handknattleiksdeild/ljosmyndir
  • Fótbolti: https://grotta.is/knattspyrnudeild/ljosmyndir-2021/
DEILA FRÉTTABRÉFINU DEILA FRÉTTABRÉFINU
ÁFRAMSENDA TÖLVUPÓST ÁFRAMSENDA TÖLVUPÓST
Facebook
Website
© 2021 Íþróttafélagið Grótta

Viltu breyta skráningunni þinni á póstlistanum?
Þú getur breytt henni hér or afskráð netfangið þitt hér.

Email Marketing Powered by Mailchimp