Mánudaginn 17. ágúst fór fram formanna- og framkvæmdastjórafundur, þar sem farið var yfir helstu áherslur fyrir veturinn. Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Rannsóknum og greiningu var með fyrirlestur um andlegt og líkamlegt heilbrigði barna út frá Ánægjuvoginni. Beint í framhaldinu fór svo fram stefnumótun FSÍ. Hópurinn var þriðji af þremur sem koma að því að marka stefnu sambandsins en áður hafði Harpa Þorláksdóttir, stjórnarkona, sem stýrir vinnunni unnið með stjórn og skrifstofu í einum hópi og svo fagnefndum, landsliðsþjálfurum og þjálfurum úr félögunum í öðrum hópi.
|