Copy

Aðalfundur Rafmyntaráðs

Nú er komið að aðalfundi Rafmyntaráðs Íslands. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 29. september að Katrínartúni 4, á annari hæð klukkan 17:00.

Stefnt er að því að hafa fundinn hnitmiðaðan í ljósi aðstæðna og verða allar sóttvarnir tryggðar á staðnum. Það er mikilvægt að við fáum sem flesta félaga úr samtökunum á staðinn til að stjórnin sem verður kosin fái meðbyr inn í nýja starfsárið.
 

Félagsaðild

Ef þú ert nú þegar skráð/ur í samtökin er mikilvægt að þú greiðir árgjaldið fyrir fundinn til að geta tekið þátt í kosningunum. Við hvetjum þig til að skrá þig í samtökin!
 
Skráðu þig í samtökin

Tækifæri í stjórn samtakanna

Stjórn Rafmyntaráðs skipa sjö einstaklingar hverju sinni. Um er að ræða frambærilegan hóp af fólki úr öllum áttum sem mótar stefnu Rafmyntaráðs ár hvert. Vert er að taka það fram að engin sérstök þekking er nauðsynleg og það skiptir samtökin miklu máli að hafa sem mesta fjölbreytni innanborðs. Skort hefur konur í stjórn og hvetur stjórnin þær því sérstaklega til að bjóða sig fram.

Ef þú vilt kafa dýpra ofan í heim rafmynta og bálkakeðja þá er stjórnin tilvalinn staður til að byrja þá vegferð fljúgandi. Einnig hafa einstaklingar í stjórn ráðsins góða yfirsýn yfir tækifærin í geiranum.

Stjórnin fundar annan hvern mánuð í 90 mínútur og eru önnur störf utan þess tíma ekki skylda. Samtökin hafa framkvæmdastjóra í fullu starfi sem heldur utan um daglegan rekstur samtakanna og önnur málefni.

Hægt er að lesa meira um störf stjórnar Rafmyntaráðs á wiki síðu samtakanna.
Skráðu þig í framboð til stjórnar

Dagskrá fundarins

  1. Stjórn skipar fundarstjóra og ritara
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Framkvæmdaáætlun lögð fram af framkvæmdastjóra fyrir næsta almannaksár
  5. Lagabreytingar
  6. Ákvörðun félagsgjalds
  7. Kosning stjórnar
  8. Önnur mál


Sjáumst á aðalfundinum,
Stjórn Rafmyntaráðs
Copyright © 2020 Rafmyntaráð Íslands, All rights reserved.


Want to change how you receive these emails?
You can update your preferences or unsubscribe from this list.