Copy
Umsóknarfrestur er til og með 2. ágúst 2021.

Tækifæri til samstarfs við Króatíu á sviði menntamála á vegum Uppbyggingarsjóðs EES

Uppbyggingarsjóður EES í Króatíu auglýsir eftir áhugasömum aðilum hjá grunn- og framhaldsskólum og sveitarfélögum á íslandi til að taka þátt í tengslaráðstefnu 26. maí nk.

Tilgangurinn með tengslaráðstefnum er að auðvelda leit að samstarfsaðilum og undirbúning og þróun umsókna í Uppbyggingasjóð EES fyrir næsta umsóknarfrest sem er 2. ágúst 2021, um er að ræða 12-21 mánaða tvíhliða samstarfsverkefni króatískra aðila með samstarfsaðilum frá Íslandi, Noregi og/eða Liechtenstein.
 
Tengslaráðstefnan verður leidd af króatískum aðilum og fer fram á ensku. Áhersla er lögð á STEM færni kennara og nemenda, upplýsinga- og samskiptatækni í námi, frumkvöðlastarfsemi og borgararéttindi ásamt mörgu öðru.

Auglýsing fyrir smærri verkefni: Heildarfjárhæð sem er til úthlutunar er 1,2 mil evrur en styrkir til hvers verkefnis eru á bilinu 50.000 til 200.000 evra. Umsóknarfrestur er til og með 2. ágúst 2021.

Auglýsing fyrir stærri verkefni: Heildarfjárhæð sem er til úthlutunar er 22,2 mil en styrkir til hvers verkefnis eru á bilinu 200.000 til 1.000.000 evra og hins vegar 1.000.000 til 3.000.000 evra Umsóknarfrestur er til og með 2. ágúst 2021.

Uppbyggingarsjóður EES er fjármagnaður af Íslandi, Liechtenstein og Noregi með því markmiði að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði innan Evrópska efnahagssvæðisins og efla tvíhliða samstarf milli EFTA ríkjanna innan EES og fimmtán viðtökuríkja sjóðsins í Evrópu. Áhugasamir vinsamlega skráið ykkur með því að senda póst á eeagrants@rannis.is fyrir 25. maí.
 

Facebook
Facebook
Twitter
Twitter
Vefsíða
Vefsíða
Forward Forward
Öll réttindi áskilin © 2021 Rannís


afskrá mig    uppfæra skráningu