Copy
Nýsköpunarsjóður námsmanna - umsóknarfrestur framlengdur til 13. febrúar nk. 

Fáðu til þín háskólanema í sumarstarf!

Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða háskólanema í grunn- og meistaranámi í sumarvinnu.

  • Styrkir eru veittir til rannsókna- og þróunarverkefna sem þykja líkleg til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja.
  • Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein.
  • Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn ábyrgðarmanna.
  • Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna.


Nýr umsóknarfrestur er 13. febrúar 2023 kl. 15:00.
Úthlutun mun liggja fyrir um mánaðarmótin mars/apríl 2023.
 

Hverjir geta sótt um?
  • Sérfræðingar innan háskóla, stofnana og fyrirtækja sem óska eftir að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknir.
  • Háskólanemar í grunn- og meistaranámi.

Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís.

Nánari upplýsingar, reglur og leiðbeiningar er að finna á vef sjóðsins: 

Vefur Nýsköpunarsjóðs námsmanna
Website
YouTube
Facebook
LinkedIn
© 2023 Rannís, Allur réttur áskilinn.


Heimilisfang:
Borgartún 30
105 Reykjavík
Afgreiðslutími skrifstofu er 9:00 - 15:00

Viltu breyta skráningunni?
Þú getur uppfært skráninguna eða skráð þig af listanum