Meistaraflokkur karla
Karlalið Gróttu eru í mikilli baráttu um að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni í Olísdeildinni. Liðið vann Hauka í æsispennandi leik síðastliðinn fimmtudag. Liðið á þrjá leiki eftir í Olísdeildinni og eru tveir þeirra heimaleikir. Með hagstæðum úrslitum, góðum stuðningi áhorfenda og von um að Haukarnir misstígi sig í sínum leikjum getur liðið komist í úrslitakeppnina í fyrsta skipti í 6 ár.
Leikjaplan:
- Grótta - ÍBV / laugardaginn 1.apríl kl. 16:00 (frítt inn í boði Hertz)
- Hörður - Grótta / miðvikudaginn 5.apríl kl. 19:30
- Grótta - KA / mánudaginn 10.apríl kl. 16:00
Meistaraflokkur kvenna
Kvennalið Gróttu tryggði sér sæti í umspilinu um laust sæti í Olísdeildinni á næsta ári með góðum sigri á Víkingi á sunnudaginn. Í undanúrslitunum í umspilinu mætir Grótta liði ÍR í einvígi. Það lið sem er fyrr að vinna tvo leiki kemst í úrslit umspilsins og mætir þar annaðhvort Selfossi eða FH.
Leikjaplan:
- ÍR - Grótta / sunnudaginn 16.apríl
- Grótta - ÍR / miðvikudaginn 19.apríl
- ÍR - Grótta / laugardaginn 22.apríl
|
|