Grótta hvetur félagsmenn sem ekki eru uppteknir í öðrum íþróttaviðburðum að taka þátt í þessu skemmtilega hlaupi sem haldið verður í 34. sinn nk. laugardag (13. maí) en hlaupið er ræst frá sundlauginni kl. 11:00.
Í boði eru þrjár vegalengdir 3,25 km, 7,5 km og 15 km. Grótta í samstarfi við TKS hefur ákveðið að veita sérstök verðlaun í karla- og kvennaflokki í öllum vegalengdum þeim sem er fyrstur í mark undir merkjum Gróttu.
Það er gert með því að skrá sig á hlaup.is og skrá „Grótta“ undir liðnum „Skokkhópur/Lið“.
Forskráning í gangi hlaup.is/vidburdir/neshlaupid-13-05-2023/
|
|