Copy
Fréttabréf Landskrifstofu Erasmus+
Maí 2023

Taktu daginn frá!
Verum græn með Erasmus+, 7. júní kl.14-17 í Veröld 

Evrópskar samstarfsáætlanir á sviði menntunar, æskulýðsmála og íþrótta – Erasmus+, eTwinning og European Solidarity Corps – leggja allar mikla áherslu á sjálfbærni sem forgangsatriði. Þær hvetja styrkhafa til að nálgast alþjóðastarf á vistvænan hátt og kalla eftir verkefnum sem takast á við loftslagsbreytingar. Ráðstefnan leiðir saman núverandi og verðandi þátttakendur í áætlununum þremur og tekur fyrir leiðir til að nýta þær í þágu loftslagsmála.  

Markmið 

  • Að kynna græn áhersluatriði í Erasmus+, eTwinning og European Solidarity Corps 
  • Að vekja athygli á góðu starfi í þágu sjálfbærni á sviði mennta- og æskulýðsmála  
  • Að veita umsækjendum innblástur og hvatningu 
  • Að styrkja tengslanet þátttakenda 

Að lokinni dagskrá verður móttaka með léttum veitingum
Öll velkomin en vinsamlegast skráið þátttöku hér.
 

Vefsíða Vefsíða
YouTube YouTube
Erasmus+ Ísland Erasmus+ Ísland
Höfundarréttur © 2023 Rannís, Allur réttur áskilinn.



Heimilisfang:
Rannís
Borgartún 30
105 Reykjavík

Viltu breyta skráningunni?
Þú getur uppfært skráninguna eða skráð þig af póstlistanum.