Copy
FRÉTTABRÉF GRÓTTU - MAÍ

Sumarnámskeið Gróttu - skráning er hafin

Skráning er hafin á sumarnámskeið Gróttu og Seltjarnarnesbæjar á Sportabler. Spennandi framboð af námskeiðum: 
  • Leikjanámskeið 
  • Smíðavöllur 
  • Survivor-námskeið 
  • Ævintýranámskeið
Skráning á Sportabler sportabler.com/shop/grotta/sumarnamskeid

Fimleika- og leikjaskóli - Skráning sportabler.com/shop/grotta/fimleikar

Hópfimleikanámskeið - Skráning sportabler.com/shop/grotta/hopfimleikar

Knattspyrnuskóli - Skráning sportabler.com/shop/grotta/fotbolti

Afreksskóli handboltans | Handboltaskóli - Skráning sportabler.com/shop/grotta/handbolti

Nánari upplýsingar um námskeiðin er hægt að nálgast á vef Gróttu á grotta.is/sumar-2023 eða í síma 561-1133 á milli kl 13:00 og 16:00. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið grotta@grotta.is 

Lengjudeild kvenna og karla að hefjast

Heimaleikjakort knattspyrnudeildar Gróttu eru komin í sölu. Við hvetjum allt stuðningsfólk til að næla sér í kort á kostakjörum. Handhafar heimaleikjakorta njóta forgangs á Vivaldi völlinn.

Sala heimaleikjakorta fer fram í vefverslun 
grotta.is/knattspyrnudeild/heimaleikjakort 

Árskortin gilda á alla deildarleiki (en ekki bikarleiki) í sumar, bæði hjá kvenna- og karlaliðum.

Heimaleikjakort Gróttu
Gildir fyrir 1 á heimaleiki í Lengjudeild karla og Lengjudeild kvenna sumarið 2023. 
Verð: 15.000 kr -- Kaupa hér

Ungmennakort Gróttu
Gildir fyrir 1 á leiki í Lengjudeild karla og Lengjudeild kvenna sumarið 2023.
Gildir aðeins fyrir handhafa á aldrinum 16-25 ára (fæddir 1998-2007).
Verð: 7.500 -- Kaupa hér

Stuðningsmannakort Gróttu 2023
Gildir fyrir 2 á heimaleiki í Lengjudeild karla og Lengjudeild kvenna sumarið 2023.
Fylgir glæsilegt Gróttu handklæði
Verð: 50.000 -- Kaupa hér

Eldri borgara ganga Gróttu 

Íþróttafélagið Grótta í samstarfi við Félag eldri borgara á Seltjarnarnesi býður öllum eldri borgurum upp á Gróttugöngu um Nesið á föstudögum kl. 10:30. 

Brottför verður frá íþróttahúsi Gróttu kl. 10:30 og að göngu lokinni býður Grótta upp á kaffi og Björnsbakarí upp á bakkelsi í anddyri íþróttahússins. 

Fyrsta ganga er á föstudaginn næsta 5.maí kl. 10:30 og lagt af stað frá anddyri íþróttahússins.

Vinsamlegast látist berast til eldri borgara í kringum ykkur. 

Öll eru velkomin!
Nýlegar fréttir frá deildum íþróttafélagsins Gróttu má finna á grotta.is og á samfélagsmiðlum.

ÁFRAM GRÓTTA! 
DEILA FRÉTTABRÉFINU DEILA FRÉTTABRÉFINU
ÁFRAMSENDA TÖLVUPÓST ÁFRAMSENDA TÖLVUPÓST
Facebook
Website
© 2023 Íþróttafélagið Grótta

Viltu breyta skráningunni þinni á póstlistanum?
Þú getur breytt henni hér or afskráð netfangið þitt hér.