Copy
FRÉTTABRÉF GRÓTTU - JÚNÍ

Sumarnámskeið Gróttu - hefjast 12. júní

Sumarnámskeið Gróttu hefjast næsta mánudag, 12. júní. Spennandi framboð af námskeiðum: 
  • Leikjanámskeið 
  • Smíðavöllur 
  • Survivor-námskeið 
  • Ævintýranámskeið
Skráning á Sportabler sportabler.com/shop/grotta/sumarnamskeid 
Fimleika- og leikjaskóli - Skráning hér
Hópfimleikanámskeið - Skráning hér
Knattspyrnuskóli - Skráning hér
Afreksskóli handboltans | Handboltaskóli - Skráning hér
Nánari upplýsingar um námskeiðin er hægt að nálgast á vef Gróttu á grotta.is/sumar-2023 eða í síma 561-1133 á milli kl 13:00 og 16:00. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið grotta@grotta.is 

Verkföll hafa engin áhrif á sumarnámskeið Gróttu

Yfirstandandi verkföll munu engin áhrif hafa á sumarnámskeið Gróttu sem hefjast næsta mánudag (12. júní).

FORSKRÁNING ER HAFIN

Þann 1. júní hófst hófst forskráning í fimleikadeild Gróttu fyrir veturinn 2023-24, skráningin stendur til 30.júní. 

Athugið að ekki er forskráning í stubbafimi en skráningin í stubbafimi opnar 1. júlí.

Greitt er 10.000 kr skráningargjald með kreditkorti við skráningu. Skráningargjaldið er óafturkræft en dregst frá æfingagjöldum næsta vetrar. Komi upp sú staða að fimleikadeildin þurfi að neita umsækjendum um pláss er möguleiki á að óska eftir að fá skráningargjaldið endurgreitt.

Athugið að biðlistinn fellur nú úr gildi og allir sem vilja komast að næsta vetur þurfa að forskrá sig. Eftir að forskráningu lýkur verður hægt að skrá á biðlista.

Skráning fer fram í gegnum Sportaabler sportabler.com/shop/grotta

Ný námskeið knattspyrnudeildar

Ný og spennandi sumarnámskeið fyrir 4. og 5. flokk karla og kvenna.

Framtíðarleikmenn meistaraflokks
  • Námskeið 1: 13., 15. og 16. júní
  • Námskeið 2: 20., 22. og 23. júní
  • Námskeið 3: 27., 29. og 30. júní
Skráning í gegnum Sportabler hér

Framtíðar markmenn meistaraflokks
  • Námskeið 1:  27., 29. og 30. júní
Skráning í gegnum Sportabler hér.

Æfingarnar fara fram á Vivaldivellinum klukkan 10 og er þeim ætlað fyrir markmenn í 3.flokk  4. og 5. flokk (fædd: 2007-2012)  

Verð: 6.000 kr. 

Dusty og Grótta bjóða upp á rafíþróttanámskeið

Rafíþróttanámskeið fyrir börn og unglinga fædd 2007 – 2014 verður haldið á vegum Gróttu og rafíþróttafélags DUSTY. Námskeiðin verða sem hér segir:

Námskeið 1: 26. júní – 30. júní (síðasti dagur skráningar er 26. júní) 
Námskeið 2: 3.júlí – 6. júlí (síðasti dagur skráningar 2. júlí) 

Yngri hópur: (9-12 ára)  kennt:  9:00-13:00
Eldri hópur: (13-16 ára) kennt: 14:00-18:00

Staðsetning námskeiðs Skútuvogur 1G, efsta hæð!
Takmarkaður fjöldi: Það komast 10 að á hverju námskeiði.

Innritun og greiðsla á eftirfarandi námskeið fer fram í gegnum Sportabler:  Nánari upplýsingar á grotta.is/almennt/grotta-og-dusty-bjoda-upp-a-rafithrottanamskeid

Sumar æfingatafla knattspyrnudeildar

Sumar æfingatafla knattspyrnudeildar tekur gildi næsta mánudag, 12 júní. Nánar á grotta.is/aefingatoflur
Nýlegar fréttir frá deildum íþróttafélagsins Gróttu má finna á grotta.is og á samfélagsmiðlum.

ÁFRAM GRÓTTA! 
DEILA FRÉTTABRÉFINU DEILA FRÉTTABRÉFINU
ÁFRAMSENDA TÖLVUPÓST ÁFRAMSENDA TÖLVUPÓST
Facebook
Website
© 2023 Íþróttafélagið Grótta

Viltu breyta skráningunni þinni á póstlistanum?
Þú getur breytt henni hér or afskráð netfangið þitt hér.