Copy
FRÉTTABRÉF GRÓTTU - ÁGÚST
Nýtt tímabil hafið í handbolta, knattspyrnu og fimleikadeild Gróttu
Æfingatöflur fyrir allar deildir Gróttu (fimleikar, handbolti og knattspyrna) eru klárar og má sjá hér fyrir neðan eða á grotta.is 
Handboltinn hjá Gróttu er kominn á fullt.

Handboltaveturinn er hafinn hjá Gróttu og eru allir krakkar velkomnir til að prufa handboltaæfingar í ágúst, í 8. - 5. flokk. Æfingatöflu vetrarins má finna hér að ofan og á grotta.is

Einnig eru allir æfingatímar komnir inn í Sportabler og búið er að opna fyrir skráningar. Nánar í Sportabler.
Handbolti - Skráning hér
Fimleikastarfið hefst mánudaginn 4. september

Æfingar fimleikadeildar hefjast mánudaginn 4.september. Tímatafla fimleikadeildar er tilbúin og birtist hún hér að neðan og á grotta.is.

Unnið er hörðum höndum að því að klára þær þjálfararáðningar sem eftir eru. Allar upplýsingar um æfingatíma og þjálfara birtast í Sportabler.
Fimleikadeild Gróttu - Nánari upplýsingar
Æfingatafla knattspyrnudeildar Gróttu

Ný æfingatafla fyrir veturinn 2022-2023 má finna hér fyrir neðan og á grotta.is

Unnið er hörðum höndum að klára ráðningar fyrir næsta keppnistímabil. Tímataflan er því birt með fyrirvara um breytingar.
Knattspyrnudeild Gróttu - Nánari upplýsingar

VERBÚÐARBALLIÐ 9. SEPTEMBER

Tvær vikur í Verbúðarballið! 🥳🥂Er þinn vinahópur klár? Miðarnir rjúka út og það stefnir í að uppselt verði á ballið eins og í fyrra! Miðasala og nánari upplýsingar á tix.is
MIÐASALA Á TIX.IS - KAUPA HÉR
Í fyrra komust færri að en vildu þegar 1000 manns skemmtu sér konunglega og troðfylltu íþróttahúsið. Rifjum upp stemninguna með geggjuðum myndum! 
Nýlegar fréttir frá deildum íþróttafélagsins Gróttu má finna á grotta.is og á samfélagsmiðlum.

ÁFRAM GRÓTTA! 
DEILA FRÉTTABRÉFINU DEILA FRÉTTABRÉFINU
ÁFRAMSENDA TÖLVUPÓST ÁFRAMSENDA TÖLVUPÓST
Facebook
Website
© 2023 Íþróttafélagið Grótta

Viltu breyta skráningunni þinni á póstlistanum?
Þú getur breytt henni hér or afskráð netfangið þitt hér.