Skólatækni, Moodle 2.3,
|
||
Hvernig væri að prufa Picmonkey?Picmonkey er í senn vandað og skemmtilegt myndvinnsluforrit sem inniheldur fjöldann allan af verkfærum til að sýsla með myndir á alla hugsanlega vegu. Picmonkey er þar að auki einfalt í notkun þökk sé sérlega aðgengilegu notendaviðmóti og ekki sakar að það er ókeypis og þarfnast einungis nútíma vefskoðara til að virka. Smelltu hér til að kynna þér Picmonkey --+--Vel heppnað forritunarnámskeið fyrir kennara
Dagana 16. - 19. júlí sl. stóð Skema í samstarfi við 3f fyrir sumarnámskeiði fyrir kennara í forritun. Á námskeðinu fengu þátttakendur kennslu og innsýn í leikjaforritun í Alice 2.2 forritunarumhverfinu. Óhætt er að segja að námskeiðið var mjög vel heppnað og verður vonandi hægt að endurtaka leikinn í náinni framtíð.
--+--
SkólatækniSkólatækni er vefur sem er hugsaður sem svæði þar sem kennarar geta komið og sótt hugmyndir til að nota upplýsingatækni í kennslu. Höfundur vefsins er Hjörvar Ingi Haraldsson, sem stundar nám í faggreinarkennslu í grunnskóla við kennaradeild HÍ. Markmiðið með vefnum er að koma nýjum hugmyndum á framværi sem kennarar geta síðan lagað að eigin kringumstæðum. Við hönnun vefsins var miðað við að gera hann í senn notendavænan og einfaldan. Smelltu hér til að skoða vefinn Skólatækni --+--Járn dregið úr eldinumRagnar Þór Pétursson hefur undanfarna mánuði unnið að námsefni fyrir unglingastig sem hann kallar Hugsuðir - skapandi íslenskukennsla. Efnið er ætlað til einkanota en þannig úr garði gert að það getur orðið öðrum að gagni. Ragnar hefur skrifað fróðlega færslu á vefinn sinn Maurildi um efnið og tilurð þess. --+--
|
||
Unsubscribe <<Tölvupóstur>> | Update your profile | Forward to a friend Copyright (C) 2012 3f All rights reserved. |